Pakkningalím rautt 80ml

- Vörunúmer: LM8948

3.995 kr


Pakkningalím Rautt

Rauður sílikonþéttimassi er hitaþolið einþátta þéttiefni sem fjölliðast af völdum loftraka og myndar varanlega fjarðrandi massa við þornun. Það má nota til þéttingar milli flata úr ýmsum efnum, t.d. málmi, plasti, gleri, postulíni, máluðu timbri og fl., í vélum, aflrásum, farartækjum, gámum, verksmiðjum, miðstöðvarkerfum og loftræsibúnaði.

Eiginleikar:

  • Gott þol gagnvart álagi og titringi
  • Varanlega fjaðrandi
  • Breitt notkunarsvið
  • Loðir vel við lóðrétta fleti
  • Mikið hitaþol
  • Gott efnaþol

Notagildi: Rauður sílikonþéttimassi hentar mjög vel til að þétta hús á legum, vélum, gírkössum, mismunadrifum, lokum, olíupönnum, ventlalokum, vatnsdælum, aðalljósum og ýmsu öðru.

Notkun: Fletirnir sem þétta skal verða að vera hreinir, þurrir og lausir við olíu og feiti. Losið stimpil sem festur er á hlið hylkisins, og spíss sem er á stimplinum. Festið á stút hylkis. Berið efnið jafnt á fletina og leggið þá umsvifalaust saman. Eftir notkun skal loka stút hylkisins.

Athugið: Gera má ráð fyrir ófullnægjandi viðloðun við efni eins og pólýprópýlen, pólýetýlen, Teflon og tjöruefni. Því er mælt með viðloðunarprófun fyrir notkun.

Magn 80ml

StaðsetningLagerstaða?
Klettháls 5 (lager)
Bíldshöfði 10
Akureyri
Hafnarfjörður
Selfoss
Stilling hf.