Mótorolía HC 5W30 1L

- Vörunúmer: LM8972

4.995 kr


TopTec 4200 SAE 5W30 mótorolía

Mótorolía TopTec 4200 er hátækni, lágnúnings vélarolía sem nota má allan ársins hring á allar bensín- og dísilvélar með eða án smáagnasíu (DPF). (Undanskildar eru TDI vélar, R5 og V10, framleiddar fyrir 06.2006.) Olían uppfyllir evrópska Euro IV og V mengunarstaðla. Hún er búin til úr nýjustu bætiefnum og óhefðbundnum olíugrunni, framleiddum með vetniskljúfandi aðferðum sem veldur því að hún smýgur vel og dregur úr sliti og eldsneytisnotkun. Með Mótorolíu TopTec 4200 er jafnvel hægt að fresta olíuskiptum (til allt að 30-50.000 km fresti ef framleiðandi leyfir). Olían hentar einnig metanvélum (CNG/LPG).

Eiginleikar:

  • Jafnari vélagangur
  • Lengir tíma milli olíuskipta vegna einstaklega öflugrar slitvarnar
  • Hröð olíudreifing við lágan hita
  • Góður þrýstingur á olíu við alla vélarhraða
  • Áreiðanleg smurning við háan og lágan hita
  • Hátt núnings- og aldursþol
  • Dregur úr eldsneytisnotkun og mengun
  • Hreinni vél
  • Prófuð í bifreiðum með hvarfakútum og/eða túrbínum

Notagildi: Hentar bensín- og dísilvélum hvort sem langur tími líður á milli smurninga eða ekki. Hentar bæði bifreiðum sem eru með og án dísilsmáagnasíu (DPF) sem margir bílaframleiðendur eru farnir að krefjast.

Notkun: Fylgja skal notkunarleiðbeiningum vélaframleiðenda varðandi meðhöndlun og smurningu véla.

ATH: Full virkni og vörn fyrir dísilsmáagnasíuna er einungis tryggð ef vörunni er ekki blandað við aðrar olíur.

ATH fyrir verkstæði: Olíuleifar í kerfi mega ekki vera meira en 5% til að olían teljist óblönduð.

Uppfyllir eftirfarandi staðla:

ACEA C3 API SP, BMW Longlife-04, MB-Approval 229.31, MB-Approval 229.51, MB-Approval 229.52, Opel OV 040 1547 - G30 / Opel OV 040 1547 - D30, Porsche C30, VW 504 00, VW 507 00

LIQUI MOLY mælir með vörunni á ökutæki sem sett eru eftirfarandi skilyrði:

ACEA C2, BMW Longlife-01 (up to 2018), BMW Longlife-01 FE (up to 2018), Fiat 9.55535-S1, Fiat 9.55535-S3, GWM, HAVAL, VW 500 00, VW 501 01, VW 502 00, VW 503 00, VW 503 01, VW 505 00, VW 505 01, VW 506 00, VW 506 01 (With the exception of R5 and V10 TDI engines before 6/2006), Wuling

Einnig til undir vörunúmeri LM3706.

StaðsetningLagerstaða?
Klettháls 5 (lager)
Bíldshöfði 10
Akureyri
Hafnarfjörður
Selfoss
Stilling hf.